JÓAN

26.01.2008 17:02:20 / fregn

Nýtt blog:)

www.fregn.blog.is

styðjið mig nú, þið vitið hvað ég á erfitt með að aðlagst breytingum....hahhahhahaa


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.01.2008 22:36:44 / fregn

24. Janúar

og ættmóðir nr. 2,  hún Stefanía, mamman mín á afmæli í dag, er hún orðin 52 ára ung.....:haha:

Við systur og barnabörn færðum henni smáglaðning, keyptum handa henni gjafabréf í Selenu, svo nú getur hún farið og fengið sér sundfötin sem henni er búið að langa lengi í, ekki það að hún syndi mikið en alltaf gott að eiga góð sundföt þegar góðan dag gjöra skal, í heitum potti í góðra vina hópi, með rauðan eðalvökva í stóru glasi á bakka8) ég meina, maður á að vera vel brókaður hvort sem það er á galadinner eða galapotter....ekki satt...heheeh...

Að auki færðu barnabörnin henni sérhannaðan púða, með myndum af henni með öllum barnabörnunum 4. Sem sagt ein mynd með hverju barnabarni á fyrsta árinu þeirra. Vakti þetta mikla lukku eins og von er og vísa.

 ELSKU MAMMA MÍN, TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN....

ELSK JÚ:lol:

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.01.2008 01:36:53 / fregn

almáttugur minn

ég er versta systa í heimi...8| en elskan mín ég gleymdi þér sko ekki.....en allavega elsku Rakel mín...nnilega til hamingju með daginn...áðan:$

 

knús og koss

Click for Full Size View

þín Jóa sys:haha:

 

kannski best að blogga eitthvað smá fyrst maður er byrjaður8)

var að enda við að horfa á Knocked up....hahha...hún var bara nokkuð fín:haha:

eina tækifærið á að horfa á svona stelpumyndir er þegar kallinn fer snemma að sofa og ég má sofa út á morgun....vííííií...veit samt ekki hvað ég á að gera af mér...ætli ég fari ekki í heimsókn til ömmu og  kannski í ræktina....ég meina kraftaverkin gerast alveg sko...hehhe..ég meina þetta þá með ræktina sko. En ég ætlaði nú að taka það rólega, þar sem ég þarf að ná blóðrþrýstingnum niður:S

Jamms...kella þarf að fara að hugsa alvarlega um heilsuna...það er nokkuð ljóst....er með háan blóðþrýsting, hátt kólesteról, og síðast en ekki síst eða jú...ætti að vera síst....vanvirkan skjaldkirtil....:S er sko ekki búin að gúggla og drekkja mér í upplýsingum um þetta svo ég get ekki frætt ykkur almennilega um þetta tiltekna vandamál, og ég man ekkert hvað doksi sagði þegar hann var að lýsa þessu fyrir mér, en til að gera langa sögu stutta þá þarf ég að fara á lyf og það þarf að finna út hvaða skammtur hentar mér og svo eftir mánuð fer ég aftur í blóðrannsókn og þá ætti að komaí ljós hvort auka þarf við mig skammtinn, sem verður líklega...doksi vildi byrja mjög rólega og gefa sér bara góðan tíma....hann versnar varla úr þessu, það er að segja vanvirknin, þar sem ég er að byrja í meðferð við því:lol:

En auðvitað verður maður að horfa á björtu hliðarnar, nú er ég komin með aðra afsökun fyrir því að vera búin að bæta á mig nokkrum grömmum:klikk: en það sem ég er komin með hingað til er þetta:

1. svo bissý húsmóðir að ég get bara ekki gefið mér tíma til að fara í ræktina, ég meina hver á að sjá um börnin, matinn heimilið, kallinn...(nei glætan að ég láti aðra um það;)

2. ég vinn heima og það eru til visindalegar rannsóknir sem staðfesta það að þegar maður á að hafa hlutina sem auðveldasta, eins og í mínu tilfelli að ég sé um að versla og ætti að geta hent í körfuna þessu holla, en einhvern vegin kem ég svo sjaldan auga á hann....hvaaa..á ég að fara a ð leita út um allt í bónus og sem verra er, fara að lesa mér til um góðar og hollar uppskriftir, og fara með tossa miða í bónus....jáaáaa...eeiiiiinnmiiiitt.....:lol:þá nennir maður því alls ekki, svo mikið ves eitthvað, miklu einfaldara að kaupa bara nagga og sænskar kjötbollur, já eða bara pullur:haha:

3. þar sem minn heittelskaði hefur saknað mín allan daginn  þá þarf ég að gefa honum tíma á kvöldin eftir að hann kemur heim, sem eins og allir vita getur verið mjög seint, og þá er náttlega mjög erfitt að vakna fyrir allar aldir í ræktina....8)

4. ef maður hefur klukkutíma aflögu og þú þarft að meta það hvort þú eigir að fara í göngutúr í slagviðri eða fá þér heitan kaffibolla með mömmu, hvað myndir þú velja....?? SEGIR SIG NOKKUÐ SJÁLFT:!::!:

5. Ég er hætt að reykja og það er visindaleg staðreynd að ALLIR bæta á sig í kjölfar þess, svo af hverju ekki ég!!!!!

6. á jólunum á maður að borða, það eru lög:lol: og ef þú vilt ekki vera lögbrjótur þá borðaru. EINFALT.

7. Árni hefur svo mikla ást að gefa, og hvað á hann að gera við það allt ef ég minnka.....:cry:

8. Ef ég fer á hlaupabretti eða skíðavél og ég er í svaka stuði með Ipodinn....hver kemur að stumra yfir mér ef ég fell í yfirlið....?? Nú auðvita einhver celeb sem var að pumpa lóð, sem er haldinn einhverri hetjuþörf og vill komast  á baksíðu 24 stunda í brof af því besta hjá Ellý Ármanns....xxxxxxx VAR Á RÉTTUM STAÐ Á RÉTTUM TÍMA, BJARGAÐI KONU Í NEYÐ Á SEM FÉLL Í YFIRLIÐ.....og svo er mynd af honum með hendi á enni mínu en búið að blurra myndina sem er á bolnum mínum, því það má engin halda það að það sé dulbúin auglýsing...8| 

Já þetta er það sem er komið á listann:P

 

ætla að fara að skunda í bælið og breiða yfir minn elskulega....honum verður nefnilega alltaf svo kallt á öxlunum, þessi elska....

 

Góða nótt og dreymi ykkur ljúfa drauma, en ekki eins og þegar  mig dreymir að keyra undir vinnuvél, reyna að mæta ekki of seint í mitt eigið brúkaup, sem gengur ekkert að undirbúa, hella mér yfir vinkonur,...fjúff...er það skrítið að maður sé með háan þrýsting:frown:

 

takk fyrir og góðar stundir

minni á nýtt netfang

jorunnfregn@gmail.com

endilega sendið mér póst á það svo ég geti addað ykkur í netfangaskránna...:haha:

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

13.01.2008 22:05:51 / fregn

afmælisbörn dagsins

er elskulegi afi minn og varð hann 77 ára í dag. Elsku afi, takk fyrir kaffið og samveruna í dag:haha:

 

Click for Full Size View
svo er það hann Tobbi Bró 3 sem á líka afmæli í dag og blés hann á alls 31 kerti í dag, kallinn og gerði það með glæsibrag án þess að blása úr nös....hahaah...nei nei bara djóka en 31ns er hann og óskum við honum innilega til lukku með daginn og takk fyrir okkur í dag...:haha:
Click for Full Size View

» 0 hafa sagt sína skoðun

09.01.2008 10:44:49 / fregn

Fjáröflun hjá Sigga

Það stendur yfir fjáröflun hjá Sigga fyrir Gothica cup mótið og voruð mörg ykkar svo góð að styrkja hann vel síðast með jólahappadrættismiðakaupum og seldi hann mjög vel. Takk kærlega fyrir stuðninginn

 Nú er það dósasöfnun. Ef þið eigið til svoleiðis sem þið viljið losna við eða megið missa, þá væri það vel þegið...endilega hafið samband og við munum sækja það um hæl....:D

 Með kærri þökk

 Siggi og mamma

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

06.01.2008 22:57:12 / fregn

Þrettándinn

Í dag var haldið jólaboð fjölskyldunnar, hennar ömmu Siggu. Sú breyting varð á að halda það í leigusal, þar sem að fjöldinn er orðinn það mikill að það er ekki hægt að koma öllum fyrir með góðu móti. Fenginn var lítill salur upp í Grafarholti og tókst þetta með eindæmum vel. Tekin var hómynd af þessu tilefni og læt ég hana fylgja með.

Hún Hulda Lilja vinkona mín á afmæli í dag og er hún orðin 35 ára frú. Við mæðgurnar skruppum í kaffi til hennar af því tilefni og auðvitað létum við smella af okkur myndum:haha:
Ég nefnilega komst að því að þegar ég var að leita af myndum til að hafa á koddaveri sem ég ætlaði að gefa henni í afmælisgjöf að það eru nánast engar myndir til af okkur saman. Ég fann eina sem var tekin þegar Hulda útskrifaðist sem stúdent :S Svo það varð náttlega að bæta úr þessu...hahahha...læt hér fylgja með myndirnar
 
ELSKU HULDA OKKAR, INNILEGA TIL LUKKU MEÐ DAGINN OG TAKK FYRIR OKKUR Í DAG:haha:
 OG HÉR MEÐ FRUMBURÐINA OKKAR
  

» 1 hafa sagt sína skoðun

03.01.2008 16:49:17 / fregn

ÞÖRF ÁMINNING

Þetta ætti sennilega að vera límt á spegilinn á baðinu hjá þér þar sem þú getur lesið þetta á hverjum degi. Þú gerir þér kannski ekki grein fyrir því en þetta ER 100% satt!

 1. Það eru að minnsta kosti tvær manneskjur í þessum heimi sem þú myndir deyja fyrir.

 2. Það eru að minnsta kosti 15 manns í þessum heimi sem elska þig á einhvern hátt.

 3. Eina ástæðan fyrir því að einhver hati þig ER, viðkomandi vill vera eins og þú.

 4. Bros frá þér getur fært einhverjum hamingju, jafnvel þótt viðkomandi líki ekki við þig.

 5. Á hverju kvöldi, hugsar EINHVER til þín áður en viðkomandi fer að sofa

6. Þú ert himinn og jörð hjá einhverjum.

7. Þú ert einstök og sérstök í þessum heimi

 8. Einhver sem þú þekkir ekki, elskar þig.

 9. Jafnvel þegar þú klúðrar málunum, verður eitthvað gott úr því.

10. Þegar þér finnst heimurinn hafa snúið í þig baki, líttu aftur á.

 11. Mundu alltaf eftir hrósum sem þú færð. Gleymdu dónalegum hreitum.

 Já og mundu.........þegar lífið afhendir þér Sítrónu /Lime, biddu þá um Tequila og salt


» 4 hafa sagt sína skoðun

02.01.2008 15:32:44 / fregn

GLEÐILEGT ÁR 2008

 Kæru ættingjar og vinir, nær og fjær....þeð kærri þökk fyrir það gamla  og megi nýja árið færa ykkur ný ævintýri og gleði, og meiri hamingju sem aldrei fyrr....

þar sem ég veit að ykkur finnst hafa sést lítið af mér þá hófst ég handa við að stækka mig síðla haust í kjölfar þess að ég hætti að reykja...ég hef verið mjög dugleg svo ég segi sjálf frá, og komin með þessa fínu vömb og undirhakan, hefur sígið óðfluga. Og elskulegur eiginmaður minn skilur bara ekkert í því af hverju ég stekk frá speglinum....ástin...hvað ertu að pirrast, ekki hef ég tekið eftir því að þú sért að fitna....aaaaarrrrrrrgggggggg.....sko...sumir kallar, nefni engin nöfn, tjáðu sig óspart um framvindu mála hér í denn ef ég víkkaði eitthvað og það stundum á mjög særandi hátt....ekki var mín nú kát með það...skiljanlega....og nú er marr alveg brjál yfir því að kallinn segir ekki neitt...nema bara....haaa...þú að stækka...bull og vitleysa....hvernig er hægt að gera konu hamingjusama....það er mjög erfitt....stundum vorkenni ég karlmönnum fyrir að reyna...hahhahahhaa

En haldið þið að manninum sé farið að förlast sjón!!!:klikk:

dæmi hver sem vill.....:$

 

En nóg um það...ég sem sagt er búin að átta mig á því að það þýðir ekki að skýla sig endalaust fyrir því að hafa hætt að reykja, og þess vegna hef ég fitnað:evil: það er að verða ansi þreytt afsökun...

svo núna ætla ég EKKI  í megrun....8|bara að hætta að borða sælgæti, drekka gos og kvöldnarti nema um helgar, ég nenni ekki að sprengja mig alveg, því þá gefst ég bara upp.:haha:

svo er ég að byrja í ræktinni aftur...ætla að byrja um helgina...NEI EKKI Á MÁNUDAGINN, HELDUR UM HELGINA!!!! en ætla bara fara 3svar í viku....ég verð að finna einhvern takt í þessu, en ekki TAKA ÞETTA MEÐ EINHVERJU TROMPI:evil: því ég gefst þá bara upp....

SVO HILDA...START BUGGING ME!!!:haha:

 

Að lokum vil ég senda elsku litlu systur hamingjuóskir í tilefni dagsins, en nú er skutlan orðin 19 ára :D ELSKU HARPA RÚN TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN


» 7 hafa sagt sína skoðun

29.12.2007 19:40:06 / fregn

Skelltum okkur í afmæli í gær

hjá honum Dóra og var þetta þvílkt gaman...eðalveigar í bæði föstu og fljótandi formi, frábær skemmtiatriði og glæsilegir gestgjafar :D

því miður þurfti ég frá að hverfa meðan fjörið stóð sem hæst og minnti það soldið á öskubuskudæmið, var komin hingað heim rétt fyrir miðnætti...heheh...en það var ljúft, þó svo ég var nú ekki á því að fara úr partýinu, svo góð var stemmingin...meira að segja var ég farin á undan Dísu minni..og var hún þó með litlu krílin8| en ég vona að mér verði fyrirgefið og Dóri, ég á enn inni hjá þér sveiflu...ég gat ekki sýnt hvað í mér býr...hehhehe....

Í tilefni af þessum tímamótum þá langar mig að henda inn mynd af fallega fólkinu

 

Click for Full Size View

Click for Full Size View
og hér er Helena.....það er stundum lottó að ná af henni mynd...hehheh
Elsku Dísa og Dóri, takk fyrir okkur.

» 3 hafa sagt sína skoðun

24.12.2007 15:38:38 / fregn

KÆRU ÆTTINGJAR OG VINIR

Við fjölskyldan sendum ykkur okkar bestu óskir um gleðileg jól og farsældar á komandi ári.

Hafið það sem allra best yfir hátíðarnar og verið góð við hvort annað....

Vonandi hittumst við flest ykkar yfir jólin en ef ekki sendum við risa jólaknús til ykkar:D

bestu kveðjur

Jóa, Árni og börnin


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.12.2007 18:18:37 / fregn

er í þannig skapi

að mig langar að hætta þessu bulli...

 

það kvittar hvort eð er enginn fyrir komuna, hvorki hér né á öðrum síðum...maður hélt að fólk fyndist gaman af þessu en svo er greinilega ekki...ætla að hafa myndaalbúmið opið en það verður lykilorð á það...á bara eftir að akveða hvað...:klikk:

 

kveðja ein pirruð

 

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

17.12.2007 08:36:49 / fregn

Jólahappadrætti

Sælt veri fólkið

Hann Siggi minn er á leiðinni til Svíþjóðar næst sumar, til að taka þátt í fótboltamóti Gothia Cup

sem er alþjóðlegt fótboltamót og mun hann keppa við hin ýmsu lið, stór sem smá. Eins og gefur að skilja kostar að taka þátt í svona móti og því leitum við til þíní von um styrk. 

Þér er boðið að kaupa happadrættismiða á spottprís eða kr.500 og mun 400 kr. af því renna beint í ferðasjóð Sigga:haha:

svo það er vænlegur ávinningur hans að selja sem flesta miða:D

Eins og í öllum happadrættum eru góðir vinningar, stórir sem smáir.

T.d  gjafabréf á hin frægu koddaver, sem margir eru eflaust farin að þekkja og margt fleira, það er enn verið að safna vinningum:lol:

Eins og segir einhverstaðar...miði er möguleiki....og ekki verra að  styrkja gott málefni í leiðinni;)

 

Ef þú hefur áhuga, lesandi góður, að kaupa miða, þá er hægt að leggja inn á mig og ég mun merkja miða þínu nafni og koma honum til þín eins fljótt og unnt er

eða þú getur komið við og verslað af okkur miða...þér er að sjálfsögðu frjálst að versla eins marga miða og þú vilt:P og ekki slæmt að fá góða gesti í heimsókn, einnig get ég tekið við pening um leið og ég kem miða til þín.

Með von um góð viðbrögð.


Jólakveðja 


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.12.2007 13:29:41 / fregn

maður verður að monta sig aðeins...

hér er Siggi að taka á móti verðlaunum frá skólatjóranum fyrir besta árangur á fótboltamóti grunnskólnna.....þeir eru sem sagt grunnskólameistarar 7. bekkjar 2007

 

 

og hér er Ingibjörg með þjálfara sínum og með viðurkenningaskjal fyrir að vera komin með svarta rönd í tae kwon do

 

ég veit að ég er aðeins of sein að setja þetta inn en betra seint en aldrei:o)

Elsku Siggi og Ingibjörg

til hamingju með frábæran árangur.


» 2 hafa sagt sína skoðun

03.12.2007 14:38:39 / fregn

nýtt myndalbúm

Við erum að útbúa síðu þar sem við ætlum að vera með myndaalbúmið okkar...

Það er inn á Barnalandi og er linkurinn hér neðar á síðunni til vinstri...og munið að kvitta...:haha:

 

Svo sem lítið að frétta héðan, nema ég er búin að liggja í bælinu. Guð hvað ég skil litlu krílin mín hvað þau vera vond ef maður er að skipta á þeim eftir að hafa kannski brunni á rassinum...:cry: þetta er bara  hrikalegt sko...

og það sem einn "lítill" líkami getur losað sig af vökva...jeminn...:^)

jæja ætla ekkert meira út í þá sálma...hehehhehe....en ég öll að koma til...er bara mjög máttlaus og orkulítil...er aðeins farin að geta borðað, en annars bjargaði ab mjólkin mér alveg meðan það versta gekk yfir...:haha:

 

Það held ég hafi bara aldrei gerst að ég hafi ekki verið búin að skreyta þann 1. í aðventu..:$ það eru reyndar komin ljós í alla glugga og aðventu"krans" but that´s it...8|

ætlaði heldur betur að dúlla mér hér í gær...en nei..ekki aldeilis...lá bara hríðskjálfandi upp í sófa..þess á milli sem ég var hlaupandi á klósettið...á ca. 15. mín fresti...:evil:

 

Jæja segjum þetta gott í bili...

en smá tilkynning..heimasíminn er eitthvað bilaður...þarf líklega að kaupa ný hleðslubatterý í hann...er ekki alveg að fara að hlaupa út í búð núna sko...

svo ef þið viljið endilega heyra í mér, þá verðið þið að notast við gemsann...:haha:

Kveðja Jóa Rasmuss..sen


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.11.2007 10:45:09 / fregn

vonandi afsakar þetta ef ég hef ekki staðið við mitt

Ég hef á seinni árum verið plöguð af alvarlegum sjúkdómi sem nýlega hefur
fundist greining á, en engin lækning við,
enn sem komið er.


Eftirfarandi er lýsing á dæmigerðum degi þegar einkennin blossa upp :

Ég ákvað einn daginn að þvo bílinn og hélt áleiðis að bílskúrnum, en tók
þá eftir að bréf höfðu borist inn um lúguna.
Ég tók bréfin og ákvað að fara í gegnum póstinn áður en ég færi að þvo
bílinn.

Sorteraði póstinn og ákvað að henda ruslpóstinum en tók þá eftir að
ruslafatan var orðin full og lagði því reikningana
sem höfðu borist, frá mér á eldhúsborðið og ætlaði út með ruslið, en ákvað
þá að fara og borga þessa reikninga, fyrst
ég yrði við bílinn hvort eð er.

Fór inn í herbergi til þess að ná í veskið og bíllyklana en sá þá ný
e-mail í tölvunni og ákvað að svara þeim strax svo
ég gleymdi því ekki. Ákvað að ná mér í kaffibolla fyrst. Á leið inn í
eldhús tók ég eftir því að blómið í borðstofunni var
orðið heldur þurrt. Hellti nýlöguðu kaffi í bolla og ákvað að vökva blómið
áður en lengra væri haldið.

Náði í blómakönnuna og ætlaði að fylla hana með vatni þegar ég tók eftir
því að fjarstýringin af sjónvarpinu lá á
eldhúsborðinu. Ákvað að fara með hana á sinn stað í sjónvarpsherberginu
fyrst, svo ég fyndi hana örugglega um kvöldið
þegar ég settist fyrir framan sjónvarpið að horfa á uppáhaldsþáttinn "Sex
and the City".

Á leið í sjónvarpsholið rakst ég á handklæði sem ég ætlaði að setja í
þvottavélina sem beið full af þvotti. Fór þangað og
setti í vélina en fann þá gleraugun sem ég hafði verið að leita að fyrr um
morguninn. Lagði fjarstýringuna frá mér í
þvottahúsinu og fór með gleraugun inn í svefnherbergi þar sem ég ætlaði
örugglega að finna þau þegar ég færi í rúmið
að lesa uppáhaldsbókina mína......ef ég finn hana.

Stoppaði í svefnherberginu þar sem dagurinn hófst og mundi ekki lengur
hvað ég ætlaði upphaflega að fara að gera !!!

Í lok dags hafði ég því hvorki þvegið bílinn né borgað reikningana, ekki
vökvað blómin eða þvegið þvottinn, ekki farið út
með ruslið, heldur ekki svarað e-mailunum og var auk þess búinn að týna
fjarstýringunni, bíllyklunum og veskinu og kaffið
beið kalt á eldhúsborðinu.

Ég skildi ekkert í þessu því ég hafði verið á fullu allan daginn í ýmsum
snúningum. Ég hef nú uppgötvað að þetta er alvarlegt
vandamál sem ég ætla að leita mér hjálpar við.

Þessi sjúkdómur kallast á fagmáli AAADD eða "Age Activated Attention
Deficit Disorder", á íslensku "Aldurstengdur athyglisbrestur

» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9
Dagmömmur
Skemmtistaðir
FJÖLSKYLDUMYNDAALBÚM....SKOÐIÐ!!
Klukkan
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti